spot_img
HomeFréttirÍslenskir aðdáendur missa af heimaleik á árinu vegna aðstöðuleysis "Þetta er því...

Íslenskir aðdáendur missa af heimaleik á árinu vegna aðstöðuleysis “Þetta er því miður staðan”

Íslenska karlalandsliðið mun í lok mánaðar hefja keppni í undankeppni HM 2023. Með Íslandi í riðli í þessari undankeppni eru Ítalía, Rússland og Holland, en fyrstu tveir leikir mótsins verða ytra, fyrst gegn Hollandi, en svo Rússlandi.

Báðir eru leikirnir ytra vegna þess að á Íslandi er enginn samþykktur völlur fyrir íslenska landsliðið að leika á. Laugardalshöllin, sem hefur verið á undanþágu, hefur verið ónothæf vegna skemmda síðastliðið árið og er enginn annar völlur sem FIBA er tilbúið að samþykkja fyrir tiltekið mót. Minni kröfur eru settar undankeppni EM, sem kvennalandsliðið tekur þátt í og fær það lið því undanþágu til að leika leiki sína í þeim keppni í Ólafssal í Hafnarfirði.

Fréttatilkynningu KKÍ er hægt að lesa í heild hér fyrir neðan, en í henni kemur fram að ástæða þess að íslendingar fá ekki kost á að sjá íslenska landsliðið nú í nóvember, er vegna þess að á Íslandi er ekki til neinn samþykktur keppnisvöllur.

Tilkynning:

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik hefur leik í lok nóvember í undankeppni HM, FIBA WorldCup 2023, þegar liðið leikur fyrstu tvo leiki sína í riðlinum. Með Íslandi í riðli eru Ítalía, Rússland og Holland.

FIBA hefur ákveðið að keppnin fari ekki lengur fram í „sóttvarnarbubblum“ eins og undanfarin misseri heldur í klassísku fomi með heimaleikjum og útileikjum milli liðanna í riðlinum. Leikgluggarnir verða þrír með tveim leikjum hver, fyrst núna í nóvember og svo í febrúar og júlí 2022. Eftir þessa sex leiki verður ljóst hvaða þrjú lið af fjórum fara áfram í aðra umferð keppninnar.

Upp kom sú staða í aðdraganda þessa fyrsta glugga að leikvangur íslenska liðsins, Laugardalshöllin, sem er einni löglegi keppnisvöllurinn á landinu en þó með undanþágu frá FIBA hvað varðar grunnkröfur FIBA fyrir landsleiki, er ónothæf v/ viðgerða og hefur verið það sl. mánuði.

Eftir mikil samskipti við FIBA, formleg sem óformleg, varð ljóst að FIBA var ekki tllbúið til að veita undanþágu ofan á undanþágu vegna þessa heimaleiks og gaf FIBA KKÍ tvo kosti. Annarsvegar að spila í öðru landi í Evrópu eða reyna að fá rússneska sambandið til að taka leikinn að sér og leika þar. Þar sem aðeins minni kröfur eru í undankeppni EM kvenna sem einnig hefst í nóvember ákvað FIBA að heimila KKÍ að halda heimaleik okkar í þessum glugga. Hann verður gegn Ungverjalandi og fram fer á Ásvöllum í Ólafssal, sunnudaginn 14. nóvember næstkomandi. Ekki er víst að FIBA leyfi aðrar undanþágur í komandi gluggum liðsins sem verður næst að ári í nóvember 2022.

Til þess að leysa málin fór KKÍ á þess leit við FIBA og rússneska körfuknattleikssambandið að fá leyfi til að skipta á heimaleik/útileik í leikjaplaninu og úr varð að það gekk upp, Rússar taka á móti Íslandi í Sánki Pétursborg þann 29. nóvember í stað þess að koma til Íslands og verður þá vonandi heimaleikur Íslands gegn Rússum í staðinn 4. júlí 2022.

Ísland hefur leik 26. nóvember úti gegn Hollandi og heldur þaðan til Rússlands í kjölfarið og leikur því tvo útileiki í nóvember.

Þetta er því miður staðan en Ísland hefur ekki leikið heimaleik í Höllinni í rúmlega eitt og hálft ár sem var fyrst vegna COVID-ástandsins (leikið í sóttvarnarbubblum) og svo nú þegar það er loksins möguleiki að spila hér heima á ný þá koma upp aðstöðumál sem hindra það að leikmenn liðsins og íslenskir aðdáendur fái að keppa og styðja við sitt lið hér á landi. Einnig mun þetta hafa fjárhagsleg áhrif á starfsemi KKÍ þar sem sambandið verður af tekjum vegna heimaleiksins og mikils kostnaðar við að ferðast til Rússlands á þessum tíma.

Eins og KKÍ hefur bent ítrekað á þá er löngu kominn tími á að bæta aðstoðmál sérsambanda sem stunda inni íþróttir sem uppfylla nútímakröfur varðandi keppnisaðstöðu og aðgengi landsliða. Það er kominn tími til að stjórnvöld setji fjármagn í gerð þjóðarleikvangs og stígi skrefið við að framkvæma.

Fulltrúar KKÍ hafa upplýst Lilju D. Alfreðsdóttur, ráðherra íþróttamála, um stöðuna og fundað með henni nýlega vegna þessa máls.

Fréttir
- Auglýsing -