Íslandsmeistarar Stjörnunnar hafa boðað til blaðamannafundar á morgun föstudag.
Ekki er tekið fram nákvæmlega hvað félagið muni tilkynna á fundinum, en ekki er ólíklegt að þar verði kynntur leikmaður eða leikmenn fyrir komandi tímabil í Bónus deildinni.