Í kvöld kl. 19:15 hefst undanúrslitaeinvígi Keflavíkur og Vals á Sunnubrautinni í Keflavík. Deildarkeppnina kláruðu Keflavík í öðru sæti með 40 stig á meðan að Valur var einum sigurleik fyrir aftan þær, í því þriðja með 38 stig.
Liðin mættust í fjögur skipti í deildinni í vetur og skiptust þau á að vinna leikina. Eftir áramótin hafa þau mæst í tvö skipti. Fyrri leikinn sigraði Keflavík með 11 stigum í janúar, en Valur þann seinni með 23 stigum nú í mars.
Frekar um leikinn:
Bergþóra: Spennandi að fara inn í Keflavík og stela fyrsta leiknum
Erna: Þetta verður hörku sería
Podcast: Er Íslandsmeistaratitillinn á leiðinni úr Keflavík?
Yfirlit yfir undanúrslit Dominos deildar kvenna
Könnun:
Hvort liðið sigrar fyrsta leik undanúrslitaeinvígis liðanna í Dominos deild kvenna í kvöld? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) April 3, 2018
Leikur dagsins
Undanúrslit Dominos deildar kvenna:
Keflavík Valur – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport



