HomeFréttirÍsland upp um 3 sæti á heimslistanum

Ísland upp um 3 sæti á heimslistanum

 

Íslenska karlalandsliðiðn er í 44. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIBA. Eftir síðasta lokamót EuroBasket færðist liðið upp um 37 sæti á listanum og í það 47, en á listanum sem kom í síðasta desember stóð það í stað.

 

Þessir tveir leikir sem Ísland vann síðustu helgi hafa því skilað þeim upp um 3 sæti og er liðið nú í sætinu fyrir ofan Holland og neðan Bosníu.

 

Ljóst er því að frá lokum lokamóts Eurobasket síðasta hausts hefur liðið farið upp um heil 40 sæti á listanum.

 

Liðin sem Ísland er með í riðli í undankeppni heimsmeistaramótsins eru á þessum nýja lista á nokkuð ólíkum stað, en Búlgaría er það eina sem er fyrir neðan Ísland, í því 51. Tékkland er nokkuð ofar í 25. sæti listans og Finnland í því 21.

 

Fátt kemur á óvart í efstu sætum listans. Staða tveggja efstu liða óbreytt, þar sem að Bandaríkin eru efst, Spánn í öðru, en nýtt í þriðja sæti er Frakkland.

 

Hægt er að skoða listann í heild hér

Fréttir
- Auglýsing -