HomeFréttirÍsland tók bronsið á NM

Ísland tók bronsið á NM

 
Ísland hefur lokið keppni á Norðurlandamóti A-landsliða sem fram fer í Sundsvall í Svíþjóð. Íslenska liðið hafði góðan sigur á Norðmönnum í dag í leik um 3. sætið þar sem lokatölur reyndust 80-61 Íslandi í vil.
Ísland tapaði því gegn Svíum og Finnum á mótinu en hafði sigur á Dönum og Norðmönnum en Finnar eru Norðurlandameistarar eins og þegar hefur komið fram og heimamenn í Svíþjóð höfnuðu í 2. sæti.
 
Helstu tölur íslenska liðsins í dag:
 
Hlynur Bæringsson 22 stig og 13 fráköst, Logi Gunnarsson 17 stig, Jakob Sigurðarson 16 stig og Pavel Ermolinski 9 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar. Nánar um leikinn á heimasíðu KKÍ.

Við verðlauna afhendinguna við mótslok á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sundsvall var tilkynnt hverjir skipa úrvalslið mótsins. Heimamennirnir Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson voru valdir í liðið en auk þeirra voru þeir Christian Maraker, Svíþjóð og Petteri Koponen og Teemu Rannikko frá Finnlandi í úrvalsliðinu.
 
Mynd/ Hlynur Bæringsson leikmaður Sundsvall Dragons var stigahæstur í íslenska liðinu í dag á heimavelli sínum.
Fréttir
- Auglýsing -