Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta er komið í úrslitaleik Evrópumótsins í Bratislava eftir mögnuðu sigurför í gegnum úrslitakeppni B-deildarinnar.
Með því að leggja Svíþjóð að velli í undanúrslitum í gær tókst strákunum ekki aðeins að tryggja sér sæti í sjálfum úrslitaleiknum heldur gulltryggðu þeir jafnframt sæti sitt í A-deild Evrópumótsins á næsta ári. Í dag mæta þeir liði Úkraínu í hreinum úrslitaleik um sjálfan Evrópumeistaratitilinn í B-deild.
Bæði lið hafa þegar náð stóra markmiði sumarsins sem var að vinna sig upp um deild, en Úkraínumenn lögðu Portúgal í sínum undanúrslitaleik í gær.
Það er því ekkert annað en heiðurinn og bikarinn sem er undir í þessari lokarimmu tveggja bestu liða mótsins. Flautað verður til leiks klukkan 18:30 að íslenskum tíma og líkt og í gær er hægt að fylgjast með strákunum okkar í beinni útsendingu hér fyrir neðan og sjá hvort þeir landi sjálfum titlinum.
Hérna er hægt að horfa á úrslitaleikinn



