HomeFréttirÍsland mætir Lettlandi í lokaleik EM – Bein útsending

Ísland mætir Lettlandi í lokaleik EM – Bein útsending

Íslenska U20 landslið kvenna leikur í dag sinn hinsta leik á Evrópumótinu í A-deild þegar liðið mætir Lettlandi. Um er að ræða leik upp á 11. sæti mótsins.

Íslenska liðið hefur gert gífurlega vel á mótinu og þegar tryggt áframhaldandi veru sína í deildinni á næsta ári, sem verður þriðja árið í röð sem liðið leikur í efstu deild. Það verður því spennandi að fylgjast með þeim áfram.

Leikurinn hefst klukkan 11:00 fyrir hádegi og er í beinni útsendingu.

Hérna er hægt að horfa á leikinn

Fréttir
- Auglýsing -