HomeFréttirÍsland mætir Búlgaríu í átta liða úrslitum eftir dramatiskt tap

Ísland mætir Búlgaríu í átta liða úrslitum eftir dramatiskt tap

Þrátt fyrir þriggja stiga tap gegn Bosníu, 77-80, tryggði íslenska U20-landsliðið í körfubolta sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins í Slóvakíu.

Ísland, Portúgal og Bosnía enduðu öll með fjóra sigra í riðlinum, en þar sem Bosníumenn máttu ekki vinna leikinn með meira en níu stigum fylgir Ísland Portúgal áfram í úrslitakeppnina á betri innbyrðis stöðu.

Íslensku strákarnir sýndu mikla seiglu þegar þeir unnu upp tíu stiga forystu Bosníu í síðari hálfleik og leiddu leikinn þegar skammt var eftir, en misstu tökin á lokasekúndunum. Atkvæðamestir í íslenska liðinu voru þeir Viktor Jónas Lúðvíksson og Birgir Leó Halldórsson með 25 stig hvor, en Kristófer Breki Björgvinsson bætti við 12 stigum og Lars Erik Bragason skoraði 6 stig.

Eftir fjóra glæsilega sigra í fyrstu leikjunum er riðlakeppninni nú lokið og stóra stundin framundan hjá íslenska hópnum. Strákarnir mæta liði Búlgaríu í hörkuleik í átta liða úrslitunum á föstudaginn þar sem barist verður um sæti í undanúrslitum mótsins.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -