U18 ára landslið karla leikur sinn þriðja leik á Evrópumótinu (EuroBasket) í Króatíu í dag, 26. júlí, þegar liðið mætir Aserbaídsjan í Rijeka klukkan 08:30.
Íslenska liðið hefur unnið einn leik og tapað einum til þessa; eftir góðan sigur á Portúgal í fyrsta leik mótsins máttu strákarnir okkar þola stórt tap gegn sterku liði Tékklands í gær.
Hægt er að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan:



