spot_img
HomeFréttirÍsland í átta liða úrslit eftir sigur á Ungverjalandi

Ísland í átta liða úrslit eftir sigur á Ungverjalandi

Undir 20 ára karlalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Matosinhos í Portúgal. Fyrir daginn í dag hafði liðið tapað tveimur leikjum og unnið einn.

Í dag mætti liðið Ungverjalandi í lokaleik riðlakeppninnar. Segja má með sanni að íslenska liðið hafi ætlað sér sigur í dag því liðið gjörsamlega valtaði yfir Ungverjaland. Liðið komst af stað í öðrum leikhluta og skildi Ungverja eftir í reiknum.

Lokastaðan 78-41 fyrir Íslandi. Hilmar Smári Henningsson átti frábæran leik og endaði með 25 stig og 12 fráköst, Þá var nafni hans Hilmar Pétursson öflugur með 16 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar.

Sigurinn þýddi að þrjú lið voru jöfn af stigum í 2-4 sæti riðilsins en stærð sigursins í dag skilaði Íslandi öðru sætinu. Niðurstaðan því sú að Íslenska liðið er á leið í átta liða úrslit B-deildarinnar í ár.

Ísland mætir Tékklandi í átta liða úrslitum en leikurinn fer fram á föstudaginn kl 13:00 að Íslenskum tíma. Hann verður í beinni hér á Körfunni.

Tölfræði leiksins

Viðtöl eftir leik:

Fréttir
- Auglýsing -