spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaÍR semur við landsliðskonu frá Mexíkó

ÍR semur við landsliðskonu frá Mexíkó

ÍR hefur samið við Gladiönu Avila frá Mexíkó um að leika með liðinu út tímabilið í 1. deild kvenna.

Gladiana er 27 ára framherji, 177 cm á hæð, og á að baki farsælan feril en hún hefur meðal annars átt sæti í landsliði Mexíkó. Hún lék síðast með mexíkóska liðinu Escaramuzas þar sem hún var með 18,4 stig, 5,4 fráköst og 3,2 stoðsendingar að meðaltali í leik.

ÍR er í öðru sæti 1. deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Ármanns.

Fréttir
- Auglýsing -