spot_img
HomeFréttirIngvar: Vilji og barátta hjá mínum stelpum

Ingvar: Vilji og barátta hjá mínum stelpum

 

Leikur þrjú í úrslitaeinvígi Dominos deildar kvenna fór fram í kvöld en staðan var 1-1 fyrir leikinn. Haukar unnu í kvöld og eru því einum sigri frá Íslandsmeistaratitli. 

 

Valskonur komu sterkari til leiks en Haukar náðu forystu hægt og rólega. Forystuna gáfu þær aldrei frá sér en leikurinn var kaflaskiptur og komust Valskonur reglulega nálægt því að komast yfir.

 

Lokastaðan 96-85 fyrir Haukum sem leiða nú einvígið 2-1. Haukar geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í leik fjögur sem fer fram á fimmtudag kl 18:00 í Valshöllinni. 

 

Karfan spjallaði við þjálfara Hauka, Ingvar Guðjónsson, eftir leik í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -