Fjölnir lagði heimakonur í Haukum í dag í spennuleik í Ólafssal, 72-77. Eftir leikinn er Fjölnir í 2.-4. sæti deildarinnar með 12 stig líkt og Keflavík og Valur á meðan að Haukar eru í 5. sætinu með 8 stig.
Karfan spjallaði við Ingvar Guðjónsson aðstoðarþjálfara Hauka eftir leik í Ólafssal.