Fjórum dögum eftir að hafa mæst í úrslitum í Powerade bikarsins áttust KR og Keflavík aftur við en nú í Iceland Express deild kvenna. Nýkringdir Bikarmeistarar Keflavíkur léku án Birnu Valgarðsdóttir sem varð fyrir meiðslum á rist í leiknum á laugardaginn og var hvíld í þessum deildarleik.
Leikurinn, sem fór fram í DHL-höllinni, bar þess merki snemma að liðin væru ekki alveg búin að jafna sig eftir bikarúrslitaleikinn því viðureignin minnti meira á saklausan æfingaleik frekar en toppslag í Iceland Express deildinni. Jackie Adamshick fór fyrir liði Keflavíkur í byrjun leiks sem komst snemma í 11-5 og svo seinna í 15-10 og leiddi 17-14 eftir fyrsta leikhlutann. Jafnræði var með liðunum framan af öðrum leikhlutanum en vörnin small svo hjá KR liðinu í stöðunni 19-16 fyrir Keflavík. KR stúlkur skoruðu 12-2 og komust í 28-21 en körfur eftir sóknarfráköst frá Jackie og Bryndísi, sem reyndust KR-ingum erfiðar, sáu til þess að munurinn var einungis 3 stig í hálfleik, 28-25 fyrir KR.
Jackie Adamshick var komin með tvöfalda tvennu strax í hálfeik, 11 stig og 11 fráköst en hjá KR var Signý í villuvandræðum með 3 villur.
Líkt og í Laugardalshöllinni komu KR stúlkur flatar útúr hálfleiknum og gengu Bikarmeistararnir á lagið og náðu forystu strax 33-30 með tveimur vítum frá Ingibjörgu Jakobsdóttur sem átti eftir að koma heldur betur við sögu seinna í leiknum. KR steig þó upp gegn mótlætinu að þessu sinni og náðu aftur forystunni þegar Margrét sýndi sitt rétta andlit og smellti tveimur þristum, 40-35 fyrir þær röndóttu. Meiri alvara var að færast í leikinn og hiti þar sem vel var tekið á því. Helga Einarsdóttir nældi sér í óíþróttmannslega villu og Jackie í tæknivillu stuttu seinna og KR liðið með nauma forystu, 43-42, þegar fjórði leikhlutinn hófst.
Baráttan hélt áfram í fjórða leikhlutanum og liðin skiptust á að hafa foyrstuna í byrjun. Sóknarleikur liðanna var frekar tilviljanakenndur og munaði mikið um hverja körfuna. Stór þristur frá Marinu Caran eftir varnarmistök hjá KR kom Keflavík í 52-47 en baráttukörfur frá Gróu og Chazny Morris minnkuðu muninn í 52-51 þegar 5 mínútur voru eftir. Keflavíkursóknin hrökk þá í gangi og settu þær 8 stig í röð og komust í 60-51 með þristum frá Jackie og Ingibjörg en Jackie var að spila frábæran körfubolta í leiknum.
Spurningamerki verður þó að setja við varnarleik KR liðsins sem skildi hana trekk í trekk eftir galopna og þakkaði hún pent fyrir sig. KR stúlkur voru þó ekki búnar að segja sitt síðasta og komust með mikilli baráttu inní leikinn og Gróa minnkaði muninn í 60-58 þegar mínúta var eftir. Keflavík, sem höfðu verið mislagaðar hendur í síðustu sóknum, náðu ekki að skora og KR hélt í sókn þegar rúmlega 30 sekúndur voru eftir. Þegar 15 sekúndur voru eftir fór boltinn útaf á endalínunni og KR átti boltann. Chazny Morris steig upp og setti þrist sem kom KR liðinu yfir 61-60 eftir flotta fléttu og Jón Halldór tók leikhlé þegar 12 sekúndur lifðu. Ljóst var að Jackie átti að taka lokaskotið en hún fékk boltann rétt fyrir utan þriggjastiga línuna og sótti sterkt að körfunni en skot hennar var varið útaf þegar um 3 sekúndur voru eftir. Önnur flott flétta, í þetta skiptið frá Keflavík, sá til þess að boltinn barst til Ingibjargar í horninu fyrir framan KR bekkinn og hún reif sig upp í þriggja stiga skotið og smellti því niður, ekkert nema net. KR náði ekki upp skoti og Keflavík vann sætan 63-61 sigur, en liðið hefur unnið alla sex leiki sína gegn KR í vetur.
Jackie Adamshick var í "Blake-Griffin-gírnum" í kvöld, setti 31 stig og tók 20 fráköst og var langbesti leikmaður vallarins. Ingibjörg Jakobsdóttir átti góðan seinni hálfleik og reyndist banabiti KR liðsins annan leikinn í röð en hún endaði með 8 stig og 3 stoðsendingar. Bryndís er gríðarlega mikilvæg fyrir þetta Keflavíkur lið en þó hún hafi ekki skorað mikið þá setti hún mikinn svip á leikinn og endaði með 13 fráköst og 6 stig. Pálína var traust með 9 stig og 7 stoðsendingar.
Hjá KR liðinu var Chazny Morris stigahæst með 17 stig, Margrét Kara kom næst með 15 stig og 12 fráköst og Hildur Sigurðardóttir bætti við 13 stigum. Varnarlega var Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir öflug en lítið kom frá stóru leikmönnum liðsins þeim Signýju, Helgu og Hafrúnu sem fengu ekki úr miklu að moða.
Keflavík náði með sigrinum að halda tölfræðilegum möguleika á deildarmeistaratitlinum en hann er þó ansi fjarlægur og líklegast að liðið hafni í öðru sæti A-hlutans. KR liðið situr sem fastast í 3. sætinu, 10 stigum á eftir Keflavík og 8 stigum á undan Haukum sem eru í 4. sæti þegar 2 leikir eru eftir.
Mynd/ Tomasz Kolodziejski
Umfjöllun: Finnur Stefánsson





