HomeFréttirIngi Þór: Varnarleikur Keflvíkinga það sem mun ráða úrslitum

Ingi Þór: Varnarleikur Keflvíkinga það sem mun ráða úrslitum

 

Oddaviðureign Hauka og Keflavíkur fer fram í Schenker-höllinni í Hafnarfirði í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15 og sigurvegarinn arkar áfram inn í undanúrslit með Tindastól, ÍR og KR. Karfan.is fékk Inga Þór Steinþórsson til að melta aðeins viðureign kvöldsins.

 

"Það ber að þakka þessum liðum fyrir að veita okkur hlutlausa fólkinu þá veislu sem oddaleikir eru. Alveg sama með hverjum fólk heldur þá er þetta bara það sem fólk vill sjá og þessi rimma hefur boðið uppá allt sem er skemmlegt í körfubolta.

 

"Við sáum Hauka byrja fyrsta leikinn af miklu sjálfstrausti og komast í 2-0, en eftir það hafa Keflvíkingar unnið sér sjálfstraustið frá Haukum með vel útfærðum og kröftugum leik. Leikirnir hafa verið mikil skemmtun og í kvöld er allt undir. Haukar á heimavelli sem deildarmeistarar og þar á bæ hafa menn líst því yfir að allt annað en að verða Íslandsmeistarar séu vonbrigði og þar með er pressan öll á Haukum.

 

"Sviðið er stórt í kvöld og nú reynir á hvort liðið nær að hlaða í alvöru frammistöðu þar sem stuðningssveitir liðanna munu hafa mikil áhrif.  Fyrir mér er varnarleikur Keflvíkinga það sem mun ráða úrslitum en flott lið Hauka hafa ekki verið sáttir við sína frammistöðu og er það þeirra að sýna afhverju þeir urðu deildarmeistarar. Það er ekki auðvelt að spá í þennan leik, en ég spái framlengingu og Keflavík sigri á hádramatískan hátt – við fáum alvöru thriller"

Fréttir
- Auglýsing -