Fyrrum landsliðsmaðurinn Helgi Magnússon mun leika með KR það sem eftir lifir af úrslitakeppninni. KR sem komst í undanúrslit með 3-0 sigri í einvíginu gegn Njarðvík í átta liða úrslitum mun mæta annað hvort Haukum eða Tindastól í undanúrslitum en það ræðst annað kvöld.
Á 18 ára feril sínum lék Helgi aðeins með KR á Íslandi, en þá var hann einnig hjá BC Boncourt í Sviss árið 2006-07 og síðar Solna Vikings, Uppsala Basket og 08 Stockholm í Svíþjóð árin 2009-12. Helgi lék síðast með KR árið 2016 áður en að hann lagði skóna á hilluna.
Helgi mætti á sína fyrstu æfingu með KR fyrir undanúrslitin í kvöld. Facebook síða KR var með beina útsendingu frá æfingunni sem má finna hér að neðan:




