HomeBónus deildinBónus deild karlaIlic og Richard leiddu Njarðvík til sigurs gegn Þór

Ilic og Richard leiddu Njarðvík til sigurs gegn Þór

Njarðvíkingar höfðu betur gegn gestgjöfunum í Þór Þorlákshöfn, 96–91, í hörkuleik á Icelandic Glacial æfingamótinu í gærkvöldi.

Leikurinn var í járnum framan af og leiddu heimamenn með einu stigi eftir fyrsta leikhluta, 25–24. Njarðvík náði hins vegar undirtökunum í öðrum leikhluta (30–23) og leiddi í leikhléi, 54–48. Suðurnesjamenn héldu frumkvæðinu í síðari hálfleik og sigldu fimm stiga sigri í höfn þrátt fyrir harða atlögu Þórsara á lokasprettinum.

Hjá Njarðvík fór Aleksa Ilic mikinn með 24 stig og 7 fráköst á aðeins 10 skotum utan af velli, Makye Richard skilaði 22 stigum og 8 stoðsendingum og Spencer Svejcar bætti við 16 stigum. Í liði Þórs drógu tveir menn vagninn í sókninni: Djordje Dzeletovic skoraði 28 stig og tók 9 fráköst, á meðan Joey Holifield skilaði 26 stigum og 8 fráköstum, auk þess sem Jovan Sljivancic náði tvöfaldri tvennu með 18 stig og 13 fráköst.

Fréttir
- Auglýsing -