spot_img
HomeFréttirIE-deild karla: Skallagrímur lagði Fjölni í Grafarvogi

IE-deild karla: Skallagrímur lagði Fjölni í Grafarvogi

08:00

{mosimage}
(Flake var sterkur fyrir Skallana í gærkvöldi)

Skallagrímur vann Fjölni á útivelli í gærkvöldi, 80-94. Með sigrinum er Skallagrímur kominn í 5.-6. ásamt Keflavík með 6 stig eftir 5 leiki.

Í 1. leikhluta var jafnt framan af en Skallagrímur náði fljótlega valdi á leiknum og þegar leikhlutinn var allur munaði 6 stigum, 18-24. Í 2. leikhluta minnkaði Fjölnir muninn fljótlega og komst yfir en Darrel Flake tryggði Skallagrím forystu í hálfleik með því að skora flautukörfu. Skallagrímur leiddi, 42-44.

Seinni hálfleik var jafn fjörlegur og sá fyrri. Fjölnir komst yfir 61-60 en þá kom góður kafli Skallagrím og höfðu þeir 6 stiga forystu fyrir síðasta leikhlutann 65-71. Í lokaleikhlutanum varðist Skallagrímur Fjölnismönnum og þeir náðu upp forystu en lokatölur leiksins voru 80-94.

Tölfræði leiksins

mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -