Gnúpverjar sóttu ÍA heim í æfingaleik í kvöld. Liðin eru bæði í 1. deild komandi tímabils. Hlutskipti þeirra í þeirri deild undanfarin ár eru þó ólík, ÍA er að fara inn í sjöunda tímabilið í röð í næst efstu deild á meðan Gnúpverjar hafa farið upp um tvær deildir síðustu tvö ár svo spurningin sem fólk er að spyrja sig varðandi Gnúpnation, er hvort næsta stopp sé Dominos?
ÍA heldur nánast sama hópi frá síðasta tímabili og Derek Shouse er mættur aftur með þeim á parketið. Hjá Gnúpverjum er stærsta breytingin í leikmannamálum að Everage Richardson mun spila með þeim og var mættur á Akranes í kvöld.
Leikurinn í kvöld var nokkuð góður miðað við árstíma og bæði lið að verða klár í komandi tímabil. Leikurinn nokkuð jafn eftir að heimamenn höfðu byrjað betur en Gnúpverjar náðu leiknum í jafnan leik og þar við sat nánast út allan leikinn, en ÍA var þó meira og minna yfir allan leikinn.
Gangur leiks:
1. leikhluti 22-18
2. leikhluti 20-18
Hálfleikstölur 42-36
3. leikhluti 14-23
4. leikhluti 26-17
Lokatölur 82-76 fyrir ÍA
Tölfræði ÍA:
Derek 28 stig, 12 fráköst, 7 stoðsendingar, 3 stolnir, 1 blokk
Jóhannes Valur 18 stig, 5 fráköst, 1 blokk
Jón Orri 9 stig, 10 fráköst, 1 blokk
Áskell 9 stig
Siggi Rúnar 5 stig
Kacper 5 stig
Ómar 2 stig
Stefán 2 stig
Pálmi 2 stig
Tölfræði Gnúpverja:
Everage 46 stig, 7 fráköst, 3 stoðsendingar, 5 stolnir
Tómas 7 stig, 7 fráköst
Ívar 7 stig
Garðar 6 stig, 5 fráköst
Hákon 4 stig, 2 stolnir
Svavar 2 stig, 5 fráköst
Texti: HGH
Mynd: Jónas H. Ottósson af Jóhannesi Val Hafateinasyni sem átti flottan leik fyrir ÍA í kvöld.





