ÍA tók í kvöld á móti Gnúpverjum í botnslag 1. deildar. Skagamenn sátu sigurlausir á botni deildarinnar en Gnúpverjar voru tveimur sætum ofar með 4 stig.
Bæði lið höfðu tapar síðustu þremur leikjum nokkuð naumlega, ef svo má segja, og því mátti fyrirfram búast við jöfnum leik – væri byggt á frammistöðu síðustu þriggja leikja.
Annað kom á daginn því það var jafnvægi með liðunum rétt tæpar fyrstu 5 mínútur leiksins. Eftir það fór sjáfskiptingin í gang hjá Gnúpverjum á meðan heimamenn í ÍA áttu í stökustu vandræðum með beinskiptinguna og Skagabíllinn kúplingarlaus í þokkabót. Niðurstaðan varð því þægilegur 24 stiga sigur gestanna, lokatölur 76 – 100.
Andinn
Annað liðið í kvöld var andlaust og engu líkara en það væri komið í jólafrí, en samt ekki því það eru allir í stuði í jólafríinu, en það voru skagamenn svo sannarlega ekki í kvöld. Á meðan var mikill jólaandi yfir gestunum Gnúpverjum sem þó, því miður fyrir heimamenn, voru í engu jólagjafaskapi og fóru heim með alla pakkana og tóku stigin tvö með sér í þokkabót.
Tröllatölur
Bandaríkjamennirnir Everage Lee Richardson hjá Gnúpverjum og Marcus Levi Dewberry fóru mikinn í kvöld og skiluðu tröllatölum, Everage skilaði þeim þó ívið stærri, endaði leikinn með 43 stig (65% skotnýting), 18 fráköst og 9 stoðsendinga og var með frammistöðu upp á heil 64 framlagsstig, sem eru tölur sem menn eiga að samfagan. Marcus átti einnig leik sem hægt er að samfagna, 38 stig, 5 fráköst og 7 stoðsendingar sem skilaði honum framlagi upp á 42.
Einnig ber að nefna, talandi um tölfræði, að Gnúpverjar tóku 15 sóknarfráköst í leiknum á móti 7 hjá ÍA og skoruðu Gnúpverjar 17 stig með annars séns skotum, afsakið íslenskuna, á móti engu slíku stigi heimamanna í leiknum munar rúmlega um minna.
Tiltekt
Af ofanrituðu má auðveldlega taka sama hvað skók sigurinn í kvöld. Sóknarfráköt og betri skotnýting hjá Gnúpverjum auk þess sem léleg vörn heimamanna skilaði gestunum 100 stigum sem yfirleitt duga til sigur í íslenskum körfubolta.
Umfjöllun / HGH
Mynd / Jónas H. Ottósson




