Vösk sveit manna hyggur nú á hópferð á Evrópumeistaramótið í körfuknattleik sem fram fer í Litháen 31. ágúst – 18. september á þessu ári. Það eru körfuknattleiksþjálfarafélagið og dómarafélagið sem verða í oddi ferðarinnar en fyrirhugað er að sjá leiki 14.-18. september þegar úrslitin verða spiluð. Ágúst Björgvinsson er einn skipuleggjenda og segir að gaman væri að fá góðan fjölda með í svona ferð og öllum sé velkomið að slást í för. Körfubolti er gríðalega vinsæll í Litháen og má búast við rosalegri stemmningu á meðan keppnin stendur yfir.
,,Miðasala hefst núna í mars og má búast við að miðar seljist upp mjög hratt. Stefnt er á að flogið verði út miðvikudaginn 14. september og aftur til baka mánudaginn 19. september,” sagði Ágúst sem verður fararstjóri í ferðinni en hann þekkir vel til í Litháen þar sem hann var eitt tímabil og er fastagestur þar í landi ár hvert.
Ennfremur sagði Ágúst að mikilvægt væri að vita nákvæman fjölda fyrir svona ferð svo hægt sé að panta miða á leikina og fá tilboð í flug og gistingu. Verð á svona ferð fer að miklu leiti eftir fjölda og svo að sjálfsögðu eftir hvað kjör fást á miðum, flugi og gistingu.
Áhugasamir geta haft samband við Ágúst á [email protected] og svo er hægt að sjá hér leikjaniðurröðunina á EM 2011.
Virkilega spennandi ferð í bígerð hérna þar sem sterkustu körfuboltaþjóðir álfunnar munu koma saman og fá úr því skorið hver standi fremstur á meðal jafningja.





