HomeFréttirHvor leikmaðurinn er betri söngvari?

Hvor leikmaðurinn er betri söngvari?

 

Í Jólakveðjunni 2017 syngja landsliðsmennirnir Martin Hermannsson, leikmaður Chalon Reims í Frakklandi og Elvar Már Friðriksson, leikmaður Barry U í bandaríska háskólaboltanum, báðir jólalag með kveðju sinni. Martin brot úr klassískum jólaslagara José Feliciano frá árinu 1970, Feliz Navidad. Elvar öllu eldra, amerískara lag í Santa Claus is Comin to Town, sem allir frá Frank Sinatra og Bruce Springsteen til Jackson 5 hafa spreytt sig á í gegnum tíðina.

 

Mikil umræða hefur skapast síðan að Jólakveðjan kom út nú fyrir jól um hvor þeirra sé betri söngvari. Til þess að forðast frekari rifrildi og að fólk geti einbeitt sér að kærleiknum sem jólin eiga að snúast um ákvað Karfan að skella í kosningu til þess að skera úr um málið.

 

Dæmi nú hver fyrir sig. Fyrir neðan er hægt að hlusta á báða leikmenn syngja áður en gengið er að kjörkössum á Twitter.

 

Hérna er Jólakveðjan 2017

 

 

 

 

 

 

Jólakveðja Martins:

 

Jólakveðja Elvars:

Fréttir
- Auglýsing -