Karfan hefur í samstarfi við Errea ákveðið að gefa heppnum lesendum síðunnar nýju íslensku landsliðstreyjuna sem tekin var í notkun nú í nóvember.
Nokkur breyting er á búningnum frá þeim er liðið hefur leikið í síðan 2017, en stærsta breytingin þó kannski að rauður litur íslenska þjóðfánans fær öllu meira pláss í nýju útgáfunni.
Allar frekari upplýsingar um leikinn er að finna í færslu Körfunnar af Facebook hér fyrir neðan, en vilji fólk ekki taka þá áhættu að vinna sér ekki inn treyju í honum, þá er hægt að versla hana hjá Errea í Bæjalind 14-16 í Kópavogi.
Myndir af nýja búningnum má sjá hér fyrir neðan:
![](https://www.karfan.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_8076-683x1024.jpeg)
![](https://www.karfan.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_8075-1024x683.jpeg)
![](https://www.karfan.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_8077-1024x1024.jpeg)
![](https://www.karfan.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_8078-683x1024.jpeg)
![](https://www.karfan.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_8079-683x1024.jpeg)