Þrír leikir eru í 20. umferð Dominos deildar kvenna í kvöld. Fyrsti leikur umferðarinnar fór fram þann 18. síðastliðinn, en í honum sigraði Valur lið Snæfells í Stykkishólmi.
Nokkur spenna er við topp deildarinnar þar sem liðin í 2. og 3. sæti, Haukar og Keflavík, eiga leik í kvöld. Með sigri geta Haukar jafnað Val í efsta sæti deildarinnar. Sigri Keflavík verða þær jafnar Haukum í öðru sætinu.
Hvort liðið fer með sigur af hólmi í Dominos deild kvenna í kvöld? _x1f914_ #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) February 21, 2018
Leikir dagsins:
Dominos kvenna:
Haukar Keflavík – kl. 19:15
Stjarnan Skallagrimur – kl. 19:15
Njarðvík Breiðablik – kl. 19:15
1. deild kvenna:
KR Ármann – kl. 19:15




