Hrafn Kristjánsson þjálfari KR hefur í mörgu að snúast í dag þar sem hann mun stýra karla- og kvennaliði KR í Laugardalshöllinni í Poweradebikarúrslitunum. Við ræddum við Hrafn um kvennaleik KR og Keflavíkur sem hefst kl. 13:30 í Laugardalshöll.
,,Ef liðin hafa unnið sína vinnu rétt í þessari viku þá mæta þau bæði með blússandi sjálfstraust í leikinn og það þarf í raun að vera mikið að til þess að koma ekki klár í slaginn í þennan leik. Það er alveg ljóst fyrir þennan leik að stuðullinn er aðeins lægri á Keflavík en okkur, þær eru fyrir ofan okkur í deildinni og við höfum ekki unnið þær í vetur en parketið í Höllinni hefur oft verið ansi gjöfult fyrir lið sem mæta rétt stemmd,” sagði Hrafn sem telur að andlegi þátturinn eigi eftir að vega ansi sterkt í dag.
Á dögunum stjórnaði Hrafn tvíhöfða í undanúrslitum bikarsins í vesturbænum þegar kvennalið KR lagði Hamar og karlalið félagsins lagði Tindastól. Eftir svona tarnir er þá ekki þörf á því fyrir þjálfarann að sækja heilsuhæli eða aðra slíka stofnun til að vinda ofan af sér?
,,Nei ég er með ágætt andlegt ,,Thermostat” ég virðist bara róast niður þegar allt verður vitlaust í kringum mig og það er áægtis eiginleiki að hafa við þessar aðstæður. Auðvitað tekur þetta á en svona hlutir eins og góð hvíld og næring skipta sköpum svona í lokaundirbúningnum,” sagði Hrafn en mætir hann með alla sína leikmenn heila og klára í leikinn?
,,Já, þó þetta sé búið að vera vissulega áfallatímabil, er búinn að missa þrjá stærstu póstana mína út í töluverð mikil meiðsli en mér sýnist að ég fái fullan og frískan hóp út á gólfið í Höllinni sem er ánægjulegt því maður vill að allir fái að taka þátt í svona ævintýri.”
Poweradebikarúrslit í Höllinni í dag
13:30 KR-Keflavík í kvennaflokki
16:00 KR-Grindavík í karlaflokki
Miðasala á www.midi.is





