spot_img
HomeFréttirHrafn Kristjánsson: Ægir og Haukur koma sterkir í hópinn

Hrafn Kristjánsson: Ægir og Haukur koma sterkir í hópinn

 Hrafn Kristjánsson mætti í "settið" til okkar hjá Karfan.is og spjallaði við okkur léttilega um landsliðið og leikinn í dag gegn Eistlandi. Hrafn sagði liðið klárlega vanta kjöt og hæð í teiginn en vill sjá varnarleikinn sterka á morgun gegn Eistum
"Mér hefur litist prýðilega á þetta þó eðlilega sé enn nóg af hlutum sem hægt er að bæta.Liðið er prýðilega samansett af blöndu yngri og svo eldri og reyndari leikmanna. Það eina sem heldur aftur af liðinu er hvað okkur vantar fleiri stóra leikmenn til að berjast í teignum. Mér fannst liðið bara ekki mæta nægilega tilbúið í leikinn, kannski einhver yfirspenna. Mér hefur þótt íslensk landslið í öllum íþróttum gjörn á að standast það illa þegar meðbyrinn er orðinn mikill og búist er við miklum afrekum
hentar okkur Íslendingum betur að vera "Undirhundar " sagði Hrafn Kristjánsson
 
En við kennum því miður leikmönnum ekki að stækka og hvar fellst þá okkar möguleiki á sigri t.a.m í leiknum á morgun?
 
Við höldum áfram að leika þennan varnarleik sem við höfum verið að gera, skiptum á hindrunum og tvöföldum á blokkinni, við vorum að gera það vel á móti Ísrael oft á tíðum. Vandamálið var hinsvegar að þeir hittu úr ÖLLUM skotum á vængjunum þegar þeir losuðu boltann aftur út svo þurfum við að vera grimmari, það var stór munur á hvernig Ísrael nálgaðist leikinn um daginn. Þeir brutu viljandi út um allan völl og tóku okkur algerlega "úr takti" í leiknum á meðan við virtumst feimnir við að láta þá finna almennilega til tevatnsins
 
Hver eða hvað finnst þér hafa komið mest á óvart í liðinu?
 
Mér finnst gaman að sjá hvað þeir Ægir og Haukur hafa komið sterkir inn. Ægi gekk reyndar ekki mjög vel á móti Ísrael, þeir voru klókir í að nýta sér stærðarmuninn móti honum, en hann getur á móti hjálpað okkur mikið með boltapressu sinni og hraða upp völlinn Svo finnst mér bara gaman að sjá hve mikil gæði búa í þessu liði okkar. Strákar eins og Jón Arnór og Pavel fannst mér til að mynda vera að leika á nákvæmlega sama leveli og leikmenn Serbíu í fyrsta heimaleiknum
 
Verður Hrafn Kristjánsson á leiknum á morgun?

Ég mæti eðlilega á leikinn, við erum þarna smáhópur sem ætlum okkur að halda áfram að sitja sama staðnum í stúkunni og hvetja strákana áfram. Það er alger veisla að fá tækifæri á að sjá þessi sterku lið hér á landi, veisla sem enginn alvöru körfuboltaáhugamaður á að láta fram hjá sér fara. ÁFRAM ÍSLAND

Fréttir
- Auglýsing -