Hrafn Kristjánsson þjálfari Stjörnunnar var svekktur með tapið gegn ÍR í leik þrjú í einvígi liðanna í Dominos deild karla. Staðan eftir leikinn er 2-1 fyrir ÍR og geta þeir sent Stjörnuna í sumarfrí með sigri á sunnudag. Hrafn vildi sjá Ryan Taylor leikmann ÍR fá brottvísun snemma leiks þegar hann virtist henda Hlyn Bæringssyni í gólfið og var mikið af umtöluðum atvikum í leiknum og eftir hann.
Viðtal við Hrafn má finna í heild sinni hér að neðan:




