HomeFréttirHörður og Hrafn eftir leik

Hörður og Hrafn eftir leik

  „Þetta var erfið fæðing en varð pínu smeykur þegar að ég klikkaði úr vítinu og Brynjar [Þór Björnsson] setti skotið til baka þá var ég helvíti fúll með sjálfan mig en við komum til baka í framlengingunni og Serbinn steig upp,“ sagði Hörðu Axel Vilhjálmsson eftir leikinn að vonum ánægður og sáttur með sigur sinna manna.
Adrija Ciric fór hreinlega á kostum í sókn Keflavíkur og skoraði 42 stig. Hörður sagði að þetta væri sennilegast hans besti leikur á tímabilinu og að það væri frábært að hann hafi stigið upp þegar aðrir gerðu það ekki.
 
Sigurður Þorsteinsson fékk frábæra sendingu á lokasekúndunum sem hann náði ekki að skora úr og Hörður var tilbúinn að taka hann í smá kennslustund. Hann sagði að það hefði verið sætt að klára leikinn svona.
 
„Það hefði verið helvíti flott fyrst að Brynjar var búinn að setja þetta skot að klára leikinn svona en maður verður að kenna Sigga að lenda og hoppa upp aftur, ekki taka hann í loftinu.“
 
„Við erum allavega búnir að vinna einn leik og nú er pressan kominn aftur á KR. Það er bara eins og þeir séu búnir að vinna sína heimaleiki og við erum að fara á heimavöll hjá okkur. Við verðum að stíga upp og pressan er á þeim,“ sagði Hörður þegar hann var spurðu um það hvort að Keflavíkur liðið væri vaknað.
 
 Hrafn Kristjánsson
„Það er leitt að láta svona skot eins og frá Brynjari að verða að engu og ófyrirgefanlegt. Við spiluðum rosalega laka vörn í framlengingunni og það gengur ekki en þetta tapaðist ekki í framlengingunni. Við erum að skjóta 60 þriggja stiga skotum og það er ekki okkar leikur. Kannski var svæðisvörnin hjá þeim að gefa okkur þetta mörg skot eða við hættum að þora að fara inn í. Við vorum ekki beint að fá villurnar á tímabili en þetta er ekki það jafnvægi sem að við viljum á okkar sóknarleik,“ sagði Hrafn Kristjánsson eftir leikinn þegar karfan.is náði í hann eftir leik.
 
Hrafn vildi ekki meina að KR hafi verið með neitt vanmat fyrir leikinn og sagði að sínir leikmenn hafi alvega vitað að Keflavík gæti alltaf komið til baka.
 
„Það vita allir hvernig þetta Keflavíkurlið er og við vissum að þeir kæmu alveg á fullu. Þeir hittu bara risaskotum og þeir héngum í þessum leik ansi lengi. Mögulega hefði sprettur okkar í þriðja og fjórða leikhluta skilað okkur sigri ef við hefðum ekki leift þeim að vera svona vel inn í leiknum fram að því.“
 
 
Fréttir
- Auglýsing -