HomeFréttirHörður Axel körfuknattleiksmaður Reykjanesbæjar 2009

Hörður Axel körfuknattleiksmaður Reykjanesbæjar 2009

 
Hörður Axel Vilhjálmsson var á gamlársdag útnefndur körfuknattleiksmaður Reykjanesbæjar árið 2009. Hörður leikur með Keflavík og hefur síðustu tvö tímabil verið burðarás í liði Keflavíkur.
Keflavík er um þessar mundir í 4. sæti Iceland Express deildar karla með 16 stig þar sem Hörður hefur gert 17 stig, tekið 4,6 fráköst og gefið 4 stoðsendingar að meðaltali í leik það sem af er þessari leiktíð.
 
Fyrir síðustu leiktíð gekk Hörður í raðir Keflavíkur frá Njarðvík en hann lék upp alla yngri flokkana með Fjölni í Grafarvogi.
 
Fréttir
- Auglýsing -