Ísland sigraði Finnland fyrr í kvöld í undankeppni heimsmeistaramótsins 2019. Íslenska liðið því komið með sinn fyrsta sigur í keppninni, en áður höfðu þeir tapað fyrir tékklandi og Búlgaríu í nóvember síðastliðnum. Næst leikur liðið gegn Tékklandi kl. 16:00 á sunnudaginn í Laugardalshöllinni.
Karfan spjallaði við leikmann liðsins, Hörð Axel Vilhjálmsson, um leik kvöldsins og hvað þýðingu leikur sunnudagsins hafi fyrir hann.




