HomeFréttirHörður Axel að semja við Keflavík?

Hörður Axel að semja við Keflavík?

Hörður Axel Vilhjálmsson leikstjórnandi Íslenska landsliðsins er mögulega á heimleið frá Kasakstan. Vísir.is sagði frá þessu fyrst í morgun en Hörður mun samkvæmt því vera að semja við Keflavík. 

 

Keflavík komst alla leið í undanúrslit á síðasta tímabili en liðið hefur ekki náð sér algjörlega á strik á þessu tímabili. Líkur eru á að Stanley Robinson fari frá liðinu yfir hátíðarnar og samið verði við annan erlendan leikmann. 

 

Hörður Axel samdi við Astana í Kasakstan fyrir tímabilið en hann var með Keflavík seinni hluta síðasta tímabils. Hörður hefur ekki leikið mikið með liðinu uppá síðkastið og vill losna frá félaginu samkvæmt Vísi. 

 

Hann gæti því verið á leið til Keflavíkur aftur samkvæmt frétt Vísis enn hann er enn samningsbundinn Astana. Hörður hefur komið víða við á atvinnumannaferlinum og hefur leikið í Grikklandi, Spáni, Þýskalandi, Belgíu, Tékklandi og Ítalíu. Hann er uppalinn hjá Fjölni en hefur leikið í Keflavík þegar hann hefur verið á Íslandi. 

 

Fréttir
- Auglýsing -