HomeFréttirHörður Axel á leið til Grikklands

Hörður Axel á leið til Grikklands

Hörður Axel Vilhjálmsson hefur samið við Gríska liðið Kymis út tímabilið en þetta er staðfest á heimasíðu félagsins fyrr í dag. 

 

Hörður lauk leik með Keflavík í Dominos deild karla í gærkvöldi þegar liðið féll úr leik í átta liða úrslitum. Herði er ætlað að fylla skarð Teddy Okereafor sem er meiddur út tímabilið. 

 

Hörður Axel hefur áður leikið í Grísku úrvalsdeildinni en þá lék hann með liði Trikala í eitt tímabil. Þar fyrir utan hefur hann leikið á Spáni, Þýskalandi, Tékklandi, Belgíu og nú síðast í Azerbajdan hjá Astana fyrri hluta þessa tímabils. 

 

Á þessu tímabili var Hörður með 16,4 stig, 5,6 stoðsendingar og 5 fráköst að meðaltali með Keflavík. Hörður er einnig byrjunarliðs leikstjórnandi Íslenska landsliðsins sem leikið hefur á tveimur síðustu evrópumótum. 

 

Kymis situr í sjöunda sæti grísku úrvalsdeildarinnar þegar 20 umferðir eru búnar. Liðið hefur unnið níu leiki á tímabilinu. Eins og staðan er í dag ætti liðið því að vera á leið í úrslitakeppni og myndi mæta þar Olympiakos. 

 

Fréttir
- Auglýsing -