Evrópuþjóðirnar Ungverjaland og Þýskaland tryggðu sér í gær sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts kvenna í körfuknattleik í Berlín með öruggum sigrum í fyrri hluta umspilsins.
Ungverjar lögðu Japan að velli með 84 stigum gegn 63. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn en Agnes Studer kom Ungverjum í 37-34 með laglegri þriggja stiga körfu á lokasekúndum hans. Í seinni hálfleik skildu leiðir og unnu ungversku konurnar sannfærandi sigur þar sem Reka Lelik fór fyrir liðinu og var stigahæst með 23 stig. Ungverjaland mætir ríkjandi heimsmeisturum Bandaríkjanna í átta liða úrslitunum.
Gestgjafar Þýskalands fóru sömuleiðis létt með lið Suður-Kóreu og fögnuðu 91-56 sigri fyrir framan stuðningsmenn sína. Eftir jafnar upphafsmínútur settu þýsku konurnar í annan gír og juku forskotið jafnt og þétt, en Marie Gülich var stigahæst í liði Þýskalands með 19 stig. Þýska liðið fær verðugt verkefni í átta liða úrslitunum þar sem það mætir ríkjandi Evrópumeisturum Belgíu.
Umspilinu lýkur svo í dag með seinni tveimur leikjunum þar sem síðustu tvö sætin í átta liða úrslitum ráðast, og verða báðir leikir dagsins sýndir í beinni útsendingu á RÚV 2. Púertó Ríkó og Kína mætast í fyrri leiknum klukkan 15:45, og klukkan 18:45 hefst viðureign Ítalíu og Ástralíu.




