HomeFréttirHM-draumurinn lifir! Sögulegur fyrsti sigur Íslands gegn Bosníu

HM-draumurinn lifir! Sögulegur fyrsti sigur Íslands gegn Bosníu

Íslenska karlalandsliðið vann stórkostlegan 113–101 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll í kvöld í undankeppni HM 2027. Þótt ekki hafi verið alveg uppselt eins og oft í síðustu landsleikjum var um tveir þriðju hlutar hallarinnar þétt setinn og stemningin frábær þegar sjaldséð staða kom upp; allir helstu lykilmenn Íslands koma inn í þetta verkefni á miklu flugi með sínum félagsliðum.

Craig Pedersen tefldi fram byrjunarliði skipuðu þeim Elvari Má Friðrikssyni, Jóni Axeli Guðmundssyni, Kristni Pálssyni, Styrmi Snæ Þrastarsyni og Tryggva Snæ Hlinasyni. Martin Hermannsson, sem hefur glímt við veikindi undanfarið, hóf leik á bekknum en kom snemma inn á í fyrsta leikhluta og lét strax til sín taka. Ísland byrjaði af miklum krafti og leiddi 32–23 að loknum fyrsta leikhluta þar sem Tryggvi og Elvar voru komnir með 7 stig hvor og Martin 6. Forskotið hefði í raun auðveldlega getað verið 20 stig miðað við gang leiksins, en með því að nýta ekki öll færin var hurðin skilin eftir opin fyrir gestina.

Bosníumenn gengu á lagið í upphafi annars leikhluta, söxuðu jafnt og þétt á forskotið og jöfnuðu metin í 40–40 með þriggja stiga körfu. Um miðjan leikhlutann fékk Tryggvi Snær sína þriðju villu og var tekinn af velli, sem var mikið áfall fyrir íslenska liðið, en Jón Axel Guðmundsson steig upp með stórbrotnum varnarleik í fyrri hálfleik og Ísland hélt naumri forystu í hálfleik, 60–57, þar sem Elvar var kominn með 16 stig og Martin 11.

Í hálfleik ómaði hið silkimjúka lag Andalúsía með Jónfrí um Laugardalshöllina og virtust hinir suðrænu og seiðandi tónar róa taugar íslenska liðsins akkúrat á réttu augnabliki, því heimamenn mættu eins og nýslegnir túskildingar út í seinni hálfleikinn. Með Tryggva Snæ aftur á parketinu lokaði íslenska vörnin öllum leiðum, og þótt hann nældi sér í fjórðu villuna um miðjan þriðja leikhluta og færi aftur á bekkinn kom það ekki að sök; Ísland jók forskotið í 84–72 fyrir lokaátökin.

Í upphafi fjórða leikhluta, í stöðunni 90–78, fékk Tryggvi svo sína fimmtu villu og lauk þar með keppni. Þar með þurfti íslenska liðið að sigla sigrinum heim án síns eina eiginlega miðherja, enda enginn í hópnum sem getur leyst hann af í þeirri stöðu. Íslenska liðið sýndi hins vegar mikla seiglu, Kristinn Pálsson og bakvarðasveitin héldu áfram að raða niður þristum og 113–101 sigur var í höfn.

Elvar Már Friðriksson var maður leiksins með 30 stig, 10 stoðsendingar og 39 framlagsstig, Kristinn Pálsson skoraði 20 stig (6/7 í þristum), Jón Axel Guðmundsson 18, Martin Hermannsson 16 stig og 7 stoðsendingar og Tryggvi Snær 11 stig.

Sigurinn heldur veikum draumi Íslands um sæti á lokamótinu í Katar lifandi, en miðað við önnur úrslit kvöldsins er ljóst að íslenska liðið þarf líklega að vinna alla þá leiki sem eftir eru til að komast áfram. Í hinum leikjum J-riðils vann Ítalía lið Tyrklands og Litháen hafði betur gegn Serbíu, sem eru óhagstæð úrslit fyrir Ísland í stóra samhenginu. Næsti leikur Íslands er einmitt gegn særðu toppliði Tyrklands ytra núna á sunnudaginn.

Tölfræði leiks

Myndasafn (Gunnar Jónatansson)

Fréttir
- Auglýsing -