Sundsvall Dragons fór upp í 2. sætið í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi með öruggum sigri á Loga Gunnarssyni og félögum í Solna Vikings. Þá höfðu Brynjar Þór og félagar í Jamtland heimasigur gegn ecoÖrebro og Helgi Magnússon og 08 Stockholm máttu þola tíu stiga tap á heimavelli.
Sundsvall 98-80 Solna Vikings
Hlynur Bæringsson var stigahæstur hjá Sundsvall með 16 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar. Pavel Ermolinski kom næstur í röðinni með 15 stig og 10 fráköst. Jakob Örn Sigurðarson bætti svo við 13 stigum og 3 fráköstum. Logi Gunnarsson var stigahæstur hjá Solna með 18 stig og 2 fráköst.
08 Stockholm 91-101 Boras Basket
Tölfræði ekki aðgengileg
Jamtland 94-85 ecoÖrebro
Tölfræði ekki aðgengileg