Nýr liður hér á Karfan.is hefur nú göngu sína og við skulum bara kalla hann Hliðarlínuna. Þeim sem finnst þessi nafngift ófrumleg og vilja eitthvað meira krassandi mega endilega senda okkur tillögur á [email protected] Liðurinn gengur þannig fyrir sig að við rífum upp símtólið og tökum púlsinn mönnum og málefnum.
Ingi Þór Steinþórsson þjálfari toppliðs Snæfells er fyrsti viðmælandi Hliðarlínunnar en við ræddum við Inga um leik gærkvöldsins sem og leiki kvöldsins sem framundan eru.





