spot_img
HomeFréttirHjalti Þór fyrir leikina mikilvægu í Podgorica "Menn eru léttir, ljúfir og...

Hjalti Þór fyrir leikina mikilvægu í Podgorica “Menn eru léttir, ljúfir og kátir”

Íslenska karlalandsliðið leikur á morgun gegn heimamönnum í Svartfjallalandi í forkeppni undankeppni HM 2023. Leikurinn sá þriðji sem Ísland leikur í sóttvarnabúbblunni í Podgorica, en áður höfðu þeir unnið Dani, en tapað fyrir Svartfellingum.

Tvö lið munu komast upp úr riðlinum og áfram í undankeppnina sem hefst í nóvember, en eitt sitja eftir.

Heimasíða keppninnar

Hérna er 14 manna hópur Íslands

Leikurinn er kl. 18:00 og verður hann í beinni útsendingu á RÚV 2. Þá verður einnig fjallað um hann hér á Körfunni, þar sem einkunnir, umfjöllun og viðbrögð þjálfara og leikmanna verða aðgengileg laust eftir leik.

KKÍ birti fyrr í dag viðtal við aðstoðarþjálfara liðsins Hjalta Þór Vilhjálmsson sem fór yfir ástand liðsins fyrir leikina mikilvægu.

Fréttir
- Auglýsing -