HomeFréttirHjalti Friðriksson með ÍR í næstu leikjum

Hjalti Friðriksson með ÍR í næstu leikjum

ÍR tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Dominos deildar karla með sigri á Stjörnunni í hörkueinvígi. Ryan Taylor verður í leikbanni í næstu leikjum og því ljóst að stórt skarð er hoggið í lið ÍR.

 

Borche Ilievski þjálfari ÍR talaði um í viðtölum eftir leik kvöldsins að leikmaður frá Kanada væri á leiðinni til að aðstoða liðið. Einhverjir ráku up stór augu þar sem félagaskiptaglugginn er lokaður og því ekki hægt að fá leikheimild fyrir nýjan leikmann. Þá hefðu einhverjir haldið að um Quincy Hankins-Cole að ræða þar sem hann er enn skráður leikmaður ÍR.

 

Svo er hinsvegar ekki heldur er það ÍRingurinn Hjalti Friðriksson sem er á leið frá Kanada til að leika með liðinu. Þetta staðfesti Borche Ilievski víðtali við Karfan.is eftir leik sem má finna hér að neðan. 

 

Hjalti lék síðast með ÍR á þar síðasta tímabili en þar á undan var hann hjá Njarðvík. Hann átti frábær tímabil í liði Breiðhyltinga 2013 og 2014. Hann spilar sem framherji og er 2 metrar á hæð svo hann ætti að geta aðstoðað ÍRinga undir körfunni í fjarveru Ryan Taylor. 

Fréttir
- Auglýsing -