HomeFréttirHinrich til Atlanta

Hinrich til Atlanta

 
Áfram halda skiptin í NBA deildinni. Melo og öll sú saga og Deron Williams frá Utah til New Jersey en nýjasta nýtt af nálinni er bakvörðurinn Kirk Hinrich sem hefur verið sendur úr höfuðborginni til Atlanta Hawks. Hinrich sem hefur byrjað nokkrum sinnum í vetur í bakvarðaparinu með nýliðanum öfluga John Wall segir nú skilið við Wizards þar sem hann var með 11,1 stig og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Atlanta Hawks fengu einnig framherjann Hilton Armstrong í skiptum fyrir Mike Bibby, nýliðann Jordan Crawford og framherjann Maurice Evans ásamt valrétt í fyrstu umferð nýliðavalsins í sumar.
 
Þá er bara að sjá hvernig John Wall mun vegna án Kirk Hinrich sem Wall sagði að hefði hjálpað sér mikið við aðlögun að boltanum í NBA deldinni.
 
Mynd/ Kirk Hinrich er kominn í raðir Atlanta Hawks.
 
Fréttir
- Auglýsing -