spot_img

Hilmir til Colorado

Hilmir Hallgrímsson hefur gengið til liðs við Colorado State University Pueblo sem leikur í Rocky Mountain Athletic riðlinum í 2. deild NCAA.

Í 21 leik fyrir Vestra í Subway-deildinni á síðasta tímabili var Hilmir með 9,4 stig og 4,9 fráköst að meðaltali í leik en mest skoraði hann 26 stig í einum leik.

Hilmir kom upp í gegnum yngri flokka Vestra og var meðal annars Scania Cup meistari með félaginu árið 2019. Auk Vestra hefur hann einnig leikið með Stjörnunni í efstu deild.

Fréttir
- Auglýsing -