spot_img
HomeFréttirHilmar Smári: Spiluðum helvíti vel

Hilmar Smári: Spiluðum helvíti vel

Undir 20 ára karlalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Matosinhos í Portúgal. Í dag lék liðið í átta liða úrslitum B-deildarinnar gegn öflugu liði Tékklands.

Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en Tékkland seig örlítið framúr í byrjun seinni hálfleiks. Íslandi tókst ekki að saxa almennilega á forystuna þrátt fyrir nokkrar tilraunir til áhlaups í lokin. Lokastaðan 77-76 fyrir Tékklandi sem er komið í undanúrslit mótsins.

Meira um leikinn hér

Karfan ræddi við Hilmar Smára Henningsson sem var besti leikmaður Íslands í dag og má sjá viðtalið í heild sinni hér að neðan:

Fréttir
- Auglýsing -