HomeFréttirHilmar Smári í Þór Akureyri

Hilmar Smári í Þór Akureyri

 

Samkvæmt fréttatilkynningu Þórs Akureyri mun bakvörðurinn Hilmar Smári Henningsson vera á leiðinni norður úr Haukum. Þá segist félagið einnig bæta við sig öðrum leikmanni, sem ekki er tilgreindur að svo stöddu. Hilmar er fæddur árið 2000 og uppalinn í Haukum. Gífurlega efnilegur leikmaður sem hefur verið lykilmaður í landsliðum síns árgangs síðustu ár.

 

Þá er einnig tekið fram að félagið sé að leita að erlendum leikmanni til þess að fylla í skarð Marqes Oliver sem meiddist í leik liðsins gegn Val þann 3. desember síðastliðinn, en talið er að hann verði frá í 8 vikur í það minnsta.

 

 

Fréttatilkynning Þórs:

 

Í síðasta leik Þórs Akureyri sem var á móti Val þann 3. desember varð Marques Oliver, erlendi leikmaður liðsins, fyrir meiðslum sem komu í veg fyrir frekari þátttöku hans í leiknum. Í vikunni kom svo í ljós að meiðslin eru alvarleg og Marques verður frá keppni í að minnsta kosti 8 vikur. Þór hefur þegar hafið leit að nýjum erlendum leikmanni og vonandi skýrast þau mál fljótlega. Þar sem félagaskiptaglugginn er lokaður til 1. janúar er hins vegar ljóst að Þór verður án erlends leikmanns síðustu tvo leiki fyrri umferðar Íslandsmótsins. Þá meiddist annar lykilmaður, Ingvi Rafn Ingvarsson, á æfingu í vikunni og verður eitthvað frá vegna þeirra meiðsla.

 

Félagið ætlar hins vegar að því að styrkja liðið fyrir átökin í seinni umferðinni sem hefst eftir áramót. Fyrsta skrefið í því var að semja við Hilmar Smára Henningsson sem er með allra efnilegustu leikmönnum landsins. Hilmar Smári er bakvörður sem er uppalinn í Haukum. Hann er fæddur árið 2000 og hefur verið lykilmaður í yngri landsliðum í sínum árgangi undanfarin ár. Þá er einnig stefnt að því að bæta við að minnsta kosti einum leikmanni til viðbótar og búist er við að þau mál skýrist nánar á næstu dögum.

Körfuknattleiksdeild Þórs Akureyri

Fréttir
- Auglýsing -