Samkvæmt heimildum mun leikstjórnandinn efnilegi Hilmar Pétursson leika með Keflavík í Dominos deildinni á komandi tímabili. Hilmar sem er 17 ára, er að upplagi úr Haukum, en hann spilaði 21 leik með Hamar í 1. deildinni á síðasta tímabili og skilaði í þeim 10 stigum, 3 fráköstum og 2 stoðsendingum að meðaltali.
Hilmar hefur leikið með bæði undir 16 ára liði og nú síðasta sumar undir 18 ára liði Íslands.




