spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar og félagar lutu í lægra haldi gegn toppliðinu

Hilmar og félagar lutu í lægra haldi gegn toppliðinu

Hilmar Pétursson og félagar í Munster máttu þola nokkuð stórt tap í kvöld fyrir toppliði Pro A deildarinnar í Þýskalandi Rasta Vechta, 68-102.

Eftir leikinn eru Munster í 14. sæti deildarinnar með fimm sigra og átta töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 23 mínútum spiluðum í leiknum var Hilmar með fjögur stig, frákast og tvær stoðsendingar.

Næsti leikur Munster er þann 29. desember gegn Dresden.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -