spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar hafði betur gegn Hilmari Smára í Þýskalandi

Hilmar hafði betur gegn Hilmari Smára í Þýskalandi

Hilmar Pétursson og félagar í Munster höfðu betur gegn Hilmari Smára Henningssyni og ísbjörnunum frá Bremerhaven í Pro A deildinni í Þýskalandi í dag, 89-82.

Hilmar Péturs var næs stigahæstur hjá Munster í leiknum með 17 stig og við það bætti hann 5 fráköstum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.

Hilmar Smári átti einnig góðan dag fyrir sína menn í Bremerhaven, með 10 stig, stoðsendingu og stolinn bolta.

Eftir umferðina er Munster í 7. sæti deildarinnar með sjö sigra á meðan að Bremerhaven eru öllu neða í töflunni, í 15. sætinu með þrjá sigra eftir fyrstu 11 umferðirnar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -