spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar frábær er Munster lögðu Bremerhaven

Hilmar frábær er Munster lögðu Bremerhaven

Hilmar Pétursson og Munster höfðu betur gegn Bremerhaven í Pro A deildinni í Þýskalandi, 83-91. Með Bremerhaven hefur sveitungur Hilmars, Hilmar Smári Henningsson, leikið á þessu tímabili, en hann var frá vegna meiðsla í leiknum og mun ekki leika meira með þeim á þessu tímabili.

Hilmar var frábær fyrir Munster í leiknum, lék rúma 31 mínútu og skilaði 20 stigum, frákasti, 4 stoðsendingum og stolnum bolta.

Munster er eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með 15 sigra og 11 töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -