spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar atkvæðamikill í sigri gegn Leverkusen

Hilmar atkvæðamikill í sigri gegn Leverkusen

Hilmar Pétursson og félagar í Muenster lögðu Leverkusen í þýsku Pro A deildinni, 82-94.

Muenster eru eftir leikinn í 9. sæti deildarinnar með þrjá sigra og tvö töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 19 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Hilmar 15 stigum, 3 fráköstum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.

Næsti leikur Muenster er þann 4. nóvember gegn Dusseldorf.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -