HomeFréttirHérna er hægt að kjósa Benóní verðmætasta leikmann Evrópumótsins í Króatíu

Hérna er hægt að kjósa Benóní verðmætasta leikmann Evrópumótsins í Króatíu

Benóní Andrason, leikmaður U18 landsliðs Íslands og KR, hefur staðið sig frábærlega á Evrópumótinu í Króatíu og skipað sér i flokk með bestu leikmönnum mótsins.

Það er mikill heiður fyrir þennan unga og efnilega leikmann að vera tilnefndur af FIBA sem verðmætasta leikmann B-deildarinnar.

Hann hefur verið í stóru hlutverki í liðinu og skilað atkvæðamikilli tölfræði á mótinu, en hann stendur meðal annars með 12 stig og 6,2 fráköst að meðaltali í leik. Besta leik sinn á mótinu átti Benóní gegn Portúgal þar sem hann skoraði 21 stig og hitti úr 10 af 18 skotum sínum ásamt því að taka 6 fráköst.

Hægt er að kjósa Benóní sem verðmætasta leikmann mótsins hér

Fréttir
- Auglýsing -