HomeFréttirHelgafellið gaus í Svíþjóð

Helgafellið gaus í Svíþjóð

Helgi Magnússon er maður kvöldsins í Svíþjóð en lið hans 08 Stockholm vann Uppsala 90-81 í kvöld. Helgi fór fyrir sínu liði en hann skoraði 39 stig í leiknum. Sundsvall skellti sér á toppinn, ásamt Norrköping, með sigri á Södertalje.
Helgi skoraði stigin sín 39 á aðeins tæpum 29 mínútum. Hann nýtti 11 af 15 skotum sínum(5/6 tveggja stiga og 6/9 þriggja stiga) og setti 11 af 14 vítaskotum sínum.
 
Sundsvall vann Södertalje 93-75. Hlynur Bæringsson skoraði 13 stig, Jakob Sigurðarson var með 11 stig og Pavel Ermolinskij setti 10 stig en þeir þrír voru allir í byrjunarliði Sundsvall.
 
Jamtland vann stóran sigur á Solna 101-83. Brynjar Þór Björnsson var með 17 stig fyrir Jamtland og Logi Gunnarsson skoraði einnig 17 stig en þau voru fyrir Solna.
 
Staða í deildinni:
       
1. Sundsvall Dragons 5/2 10
2. Norrköping Dolphins 5/2 10
3. Uppsala Basket 4/3 8
4. Borås Basket 4/2 8
5. Södertälje Kings 4/3 8
6. 08 Stockholm HR 4/3 8
7. LF Basket 3/4 6
8. Jämtland Basket 3/4 6
9. Solna Vikings 2/5 4
10. ecoÖrebro 0/6 0
 
Mynd: Helgi Magnússon skoraði 39 stig í kvöld.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -