spot_img
HomeFréttirHelena: Við vitum alveg að við getum unnið á Hlíðarenda

Helena: Við vitum alveg að við getum unnið á Hlíðarenda

 

Leikur þrjú í úrslitaeinvígi Dominos deildar kvenna fór fram í kvöld en staðan var 1-1 fyrir leikinn. Haukar unnu í kvöld og eru því einum sigri frá Íslandsmeistaratitli. 

 

Valskonur komu sterkari til leiks en Haukar náðu forystu hægt og rólega. Forystuna gáfu þær aldrei frá sér en leikurinn var kaflaskiptur og komust Valskonur reglulega nálægt því að komast yfir.

 

Lokastaðan 96-85 fyrir Haukum sem leiða nú einvígið 2-1. Haukar geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í leik fjögur sem fer fram á fimmtudag kl 18:00 í Valshöllinni. 

 

Karfan spjallaði við leikmann Hauka, Helenu Sverrisdóttur, eftir leik í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði.

 

Fréttir
- Auglýsing -